Menntun þeirra sem sjá um börnin er mikilvæg

Kirkja sem vill horfa fram á veginn verður að sýna í verki að hún sé þess megnug að styðja þétt við bakið á þeim einstaklingum sem axla ábyrgð í starfi með börnum og unglingum í kirkjunni í dag. Kalli eftir nauðsynlegri þjálfun þurfa að fylgja fjölbreytt tilboð um námskeið um allt land. Auk þess verður kirkjan af koma sér upp þéttriðnu neti einstaklinga sem hafa yfirumsjón með barna- og unglingastarfi í kirkjum landsins. Slík umsjón þarf að vera í höndum aðila sem hafa menntun á sviði tómstundafræða, eða uppeldis- og kennslufræða annars vegar og á sviði guðfræði og trúarlífsfélagsfræði hins vegar. Þetta tvennt þarf að koma til. Það dugar ekki að ráða einstakling sem er með próf í tómstundafræðum og biðja hann um að sjá um æskulýðsstarfið, eða að ætlast til þess að prestar séu fagmenn í uppeldisfræði . Til þess að vel til takist þarf að eiga sér stað þverfagleg vinna.

Um þetta og annað þessu tengt veltum við Magnea Sverrisdóttir vöngum í pistli á trú.is sem birtist þar í dag.

Lesa pistil á trú.is.


Ég hef aldrei tollað í tísku

Þau sem mig þekkja vita vel að ég hef aldrei tollað í tísku. Til dæmis var ég með alskegg fyrir 20 árum þegar það þótti arfavitlaust, í dag er ég næstum skegglaus. Til marks um þetta tískuleysi mitt árið 2012 þá játa ég það fúslega að mér þykir mjög vænt um þjóðkirkjuna mína. Þar vil ég vera. Og ég ætla mér að hrópa hátt á torgum bæjarins: YES, þjóðkirkja.

Slagur eða samtal?

Slagur eða samtal? er yfirskrift á bloggpistli sem biskupskandidatinn dr. Sigurður Árni Þórðarson birti á blogginu sínu í kvöld. Þar segir hann m.a.:

Ég tók meðvitaða ákvörðun um að vera með í kjöri til biskupsþjónustu. En ég tók ekki ákvörðun um að vera í einhverjum slag upp á líf og dauða. Ég gef kost á mér af því að ég elska kirkjuna. Og ég geri ráð fyrir að þau hin sem bjóða fram krafta, elju, anda og tíma geri það af svipuðum ástæðum.

Sem fyrr kemst Sigurður Árni vel að orði í pistlinum sínum. Endilega lesið hann á sigurdurarni.is


Ég styð Sigurð Árna

Ég tók mig til og skrifaði pistil til stuðnings við biskupsframboð dr. Sigurðar Árna Þórðarsonar, prests í Neskirkju. Mér þótti vænt um að geta drifið í því. Ástæðan er sú að ég er þess fullviss að biskupskápan muni klæða Sigurð Árna sérstaklega vel, ef við sem styðjum hann, gerum það á opinskáan, heiðarlegan og umfram allt málefnalegan hátt.

Pistilinn er að finna á sigurdurarni.is.


Kall eftir konu!

Kall eftir konu

Ég spyr sjálfan mig margra spurninga vegna biskupskosninga sem eru framundan. Meðal annars spyr ég: Þarf það að vera karl? Á það að vera kona? Það má vera að það sé orðum ofaukið að Djákninn á Glerá setji orð á blað um biskupskjör, enda margt skeggrætt um þau mál í gegnum tíðina.

En ég skrifaði smá pistil.


Biedermann-ismi

Í pistli dagsins á trú.is segi ég m.a.:
Samfélag sem einkennist af hugleysi, aðgerðaleysi, blindu trausti og meðvirkni er dæmt til þess að hnigna. Þjóðfélag sem sinnir ekki menntun og færniþjálfun innan ramma fjölmenningarlegs náms á ekki bjarta framtíð. Biedermann ætti að vera hverju okkar lifandi aðvörun um að gera betur.

Lesa pistil á trú.is.

Ást fyrir lífið

Astfyrirlifid

Ferðalög eru margskonar. Í sum þeirra leggjum við upp með allt okkar hafurtask, önnur eru til þess fallin að við ferðumst með lítinn farangur. Kannski er það öll fjölskyldan sem nýtir hvert horn í fjölskyldubílnum til að koma öllum farangrinum fyrir og svo er lagt af stað, allir með í för. Önnur ferðalög eru meira í huganum. Við horfum á dvd disk eða lesum góða bók og látum hugann svífa, hverfum í draumaheim þess ferðalags sem um er rætt eða búum til okkar eigið ferðalag í þveröfuga átt.

Hver þekkir það ekki að hafa látið sig dreyma um að fara í ferðalag með honum eða henni. Fá að kynnast betur. Ótrufluð. Fá að eiga næði saman. Áhyggjur hversdagsins víðs fjarri. Sum okkar þrá líka að fá að vera ein. Í huganum drögum við upp mynd af litlum fjallakofa, fallegu hótelherbergi eða sólarströnd. Ímyndum okkur staði þar sem við getum horfið í kyrrðina eða mannhafið. Þrár okkar í þessar áttir eru jafn persónubundnar og sú hryggð sem fyllir stundum hjörtu okkar yfir glötuðu stundunum.

Það eru þessar glötuðu stundir sem hafa stundum haldið fyrir mér vöku. Ég hef spurt sjálfan mig hvar við hjónin hefðum farið út af sporinu. Svör þeirra sem hafa sagt mér að á einhverjum tímapunkti verði hjónabandið hversdagslegt hafa ekki dugað mér. Ég vil meira, ég þrái ástina, hamingjuna, rómantíkina sem við áttum þegar við gengum í hjónaband fyrir hartnær 20 árum. Hún kom eins og kölluð upp í hendur mér. Bók eftir Stephen og Alex Kendrick sem hefur farið sigurför víða, meðal annars í Bandaríkjunum og Þýskalandi. Þessi bók er engin skáldsaga. Hún er enginn fræðibók heldur en hún fær heilasellurnar til að snúast og hjartað til að slá örar. Þetta er bókin sem líf mitt var að leita að. Hún er hjónabandsbók. Ætluð einstaklingum sem vilja bæta sambúð og hjónabönd, vilja vinna í samskiptum við aðra og eigin viðhorfi.

Bókin heitir Ást fyrir lífið, og kom nýverið út hjá bókaútgáfunni Tindur í þýðingu undirritaðs. Lesanda bókarinnar er boðið í ferðalag. Brottfarastaðurinn er eigið hjarta. Áfangastaðurinn er betra hjónaband. Millilent er á fjölda viðkomustaða, bæði í djúpum dölum tilfinninganna og hæstu hæðum rómantíkurinnar. Þetta er óvissuferð og þau sem í hana leggja eru hvött til þess að skrá ferðasöguna hjá sér auk þess sem hvatt er til þess að ýmiss verkefni séu leyst á leiðinni. Þú átt þitt hjónaband, þína sambúð. Enginn getur sagt þér fyrir verkum. En ég get sagt þér eitt: Við hjónum höfum fengið að upplifa jákvæðar breytingar í sambúð okkar. Kannski ekki vegna þeirra orða sem standa í bókinni heldur vegna þess að við tókum okkur tíma til þess að lesa það sem í henni stendur og hugleiða það. Kannski er Ást fyrir lífið, bók fyrir þig. Ekki missa af þessu tækifæri.


7891 Pétur Björgvin - Stefnumál

Það er gagnlegt og þarft að gefa sér tíma til vangaveltna í aðdraganda Stjórnlagaþings. Vissulega mun sú vinna sem þar fer fram vera samstarfsverkefni þeirra sem ná kjöri. Fyrsta skylda hvers og eins úr þeim hópi verður að hlusta á aðra og fara varlega í allar breytingar, því sú stjórnarskrá sem við búum við hefur staðið fyrir sínu. Ef breyta á einhverju, þá þarf að vanda þá vinnu.

Það skiptir máli með hvaða hugarfari við göngum til Stjórnlagaþings. Sem frambjóðandi númer 7891 hef ég sett mér 7 leiðarljós:

1. Tillitssemi í orði og á borði

2. Samstaða fólksins

3. Mannréttindi allra

4. Í samhengi sögunnar

5. Þekkingarmiðlun

6. Heiðarleg vinnubrögð

7. Röggsemi í vinnubrögðum

 

Þá hef ég, sjálfum mér til áminningar og öðrum til fróðleiks sem frambjóðandi 7891 til Stjórnlagaþings tekið saman 8 hluti sem ég tel að megi ekki glatast. Um hvern þessara þátta hef ég ritað örpistla á annálinn minn:

  1. Lýðveldi
  2. Forseti
  3. Þingkosningar
  4. Þrískipting ríkisvalds
  5. Kjördæmaskipan
  6. Kosningaaldur
  7. Friðhelgi Alþingis
  8. Þjóðkirkja

Á annálnum mínum hef ég einnig leyft mér sem frambjóðandi 7891 að velta upp 9 þáttum sem mér þykir að þurfi frekar að bæta heldur en hitt:

  1. Þjóðaratkvæðagreiðsla
  2. Auðlindir í almannaeigu
  3. Sterkari sveitastjórnir
  4. Sterkari þrískipting ríkisvaldsins
  5. Hlutverk forseta
  6. Vægi atkvæða sé jafnt
  7. Ráðherrar geti ekki verið þingmenn samtímis
  8. Frelsi til trúar- og lífsskoðana sé tryggt
  9. Hagsmunatengslum þingmanna séu skorður settar

Endilega kynnið ykkur málið og gerið athugasemdir, því orð mín eru eins og önnur mannanna verk, síður en svo fullkomin, þau eru aðeins sett hér fram sem upptaktur að frekari hugsun.


Pétur Björgvin á Stjórnlagaþing

Pétur Björgvin Þorsteinsson heiti ég og ég er í framboði til Stjórnlagaþings:

Nánar má fylgjast með mér á:

www.pb.is

www.facebook.com/pb.stjornlagathing


SMS-lán og fjárhagsleg heilsa

Í dag birtist á trú.is mjög þarfur pistill Ragnheiðar Sverrisdóttur djákna og sviðsstjóra kærleiksþjónustusviðs Biskupsstofu þar sem hún bendir á þá varhugaverðu þróun sem svokölluð SMS-lán geta kallað fram: ,,Þessi lán eru ávísun á fjárhagsleg vandamál einmitt vegna þess hve auðvelt er að nálgast þau - bara eitt sms skeyti.”

Endilega lesið pistilinn á trú.is


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband